Logo leigulidar.is

  Forsíða | Lausar íbúðir | Fréttir | Um Leiguliða | Leiga og skil |

Íbúðir

Eyrarflöt Akranes
Holtsflöt Akranes
Bjallavað Reykjavík
Jörfagrund Reykjavík
Ástjörn Selfoss
Sambyggð Þorlákshöfn
Norðurbyggð Þorlákshöfn
Flatahraun Hafnarfirði

Leiga
Húsreglur
Löggild leigumiðlun
Bankaábyrgð (pdf)
Leigusamningur (pdf)
Upplýsingar
Viðgerðabeiðni

Annað
Tenglar
Hafa samband

Loftsteinar ehf

Globond álplötur til sölu.

Leiguliðar - íbúð fyrir þig

Promote Your Page Too

 

Húsreglur fyrir allar íbúðir Leiguliða ehf.



1.gr.
Óheimilt er leigjanda að nota leiguhúsnæði á annan hátt en um er samið í leigusamningi.

2.gr.
Í reiðhjólageymslu ber að gæta fyllsta hreinlætis og einungis heimilt að geyma þar reiðhjól og barnavagna.

3.gr.
Þvottahús er öllum íbúðum hússins frjáls til afnota en panta þarf tíma á þar til gerðum eyðublöðum. Þvottahúsi ber notanda að skila hreinu eftir notkun hverju sinni.Þvottavélar sem og önnur tæki og áhöld hússins ber að fara vel með og þeim, er skemmir eða eyðileggur slíka hluti, ber að bæta þá að fullu

.4.gr.
Gæludýrahald er með öllu bönnuð í húsnæði Leiguliða nema annað sér tekið fram.

.5.gr.
Leigjanda er óheimilt að framkvæma breytingar eða endurbætur á hinu leigða húsnæði eða búnaði þess, nema að fengnu samþykki leigusala

.6.gr.
Leigjandi skal án tafar tilkynna leigusala um þau atriði utan húss eða innan sem þarfnast lagfæringar eða viðhalds á þar til gerðri beiðni.

7.gr.
Leigjanda er skylt að ganga vel og snyrtilega um hið leigða húsnæði.

8.gr.
Hafi umgengnisreglur verið settar í fjölbýlishúsi er leigjanda skylt að fara eftir þeim .

9.gr.
Leigusali á rétt á aðgangi að hinu leigða húsnæði með hæfilegum fyrirvara og í samráði við leigjanda þannig að hvorki fari í bága við hagsmuni hans né leigjanda til að láta framkvæma úrbætur á hinu leigða og til eftirlits með ástandi þess og meðferð.

10.gr. Reglur þessar eru settar skv. ákvæði í gildandi húsaleigusamningum(gr 13.11) og eru ætlaðar til þess að íbúum séu ljósar skyldur gagnvart öðrum íbúum hússins. Um skyldur íbúa gagnvart leigusala (og öfugt) er vísað til ákvæði í húsaleigusamningi. Ítrekað brot á húsreglum leiðir til uppsagnar á húsaleigusamningi.


Skrifstofan er opið frá 9:00-12:00 og 12:30 16:00 :mánud til fimmtud lokum kl 13:00 föstudaga.

Leiguliðar ehf kt: 450901-3420. Fossaleyni 16. 112 Reykjavík. Sími: 517-3440 Fax: 517-3450

Forsíða
Efst á síðu