|
|
Leiga og skil
Umsóknir
Allir þeir er uppfylla skilyrði um úthlutun geta sótt
um leiguíbúðir Leiguliða ehf.
Frá og með
4 september 2007 er aldurstakmark umsækjenda 20 ár, ekki
verður tekið við umsóknum frá aðilum yngri
en það.
Úthlutun íbúða
og leigusamninga.
- Allar íbúðir
sem eru lausar til umsóknar skulu auglýstar í svæðisblöðum
viðkomandi sveitafélags og / eða á heimasíðu
félagsins www.leigulidar.is.
- Umsóknartímabil
er hið minnsta fimm virkir dagar.
- Staðfestingargjald
er kr 20.000 og leggist inn á 0324-13-300106
kt 450901-3420 eftir að umsækjandi hefur fengið staðfestingu frá Leiguliðum um íbúð.
- Ef fleiri en einn
umsækjandi eru um lausa íbúð fær sá
er efstur á lista íbúðina.
- Ef viðkomandi
hættir við eða uppfyllir ekki skilyrði um úthlutun
skal sá sem er næstur fá úthlutun o.s.frv.Staðfestingar
gjald er ekki endurgreitt en fer upp í umsýslugjaldið.
Umsýslugjald og leigutími:
Um áramótin 2006-2007 verður sú breyting hjá
Leiguliðum að ekki verða gerðir leigusamningar undir 12
mánuðum. Einnig verður sú breyting að nú
verður rukkað fast umsýslugjald kr 60.000 á íbúð.
Umsýslugjald greiðir
fyrir:
- Úttektargjald: við skil á íbúð er frá kr 16.800
- Sílinderskipti: við skil á íbúð er frá kr 11.500
- Samningsgerð: útbúa leigusamnig og tíma pantanir um kr 25.000
- Umsýslugjald:
- Það sem flokkast undir þennan lið : Samskipti við leigutaka og þá lánastofnun sem viðkomandi er í viðskiptum við og eða félagsmálastofnun, panta úttektir, álestur á rafmagni við upphaf og leigulok,fara með leigusamningi í afléttun hjá sýslumanni svo fátt eitt sé talið upp.
Umsýslugjald greiðir
ekki skemmdir á íbúð sem koma fram við lokaúttekt eða málun á íbúð.
Greiða þarf eftirstöðvar umsýslugjalds með fyrstu leigugreiðslu.
Þessi breyting
kemur til vegna kostnaðar við hver leiguskipti, leigutakar hafa
ekki gert sér grein fyrir því að hann er sá
sami eftir 2-4-6 eða 12 mánuði. Það hefur verið
stefna frá upphafi hjá Leiguliðum að halda öllum
kostnaði vegna leiguskipta í lágmarki. En það
er alltaf viss kostnaður sem fellur til þegar skilað er
inn íbúð.
Ef upp koma vandamál
varðandi skemmdir á íbúð við skil fær
leigutaki sendan sér reikning fyrir matskostnaði samkvæmt
skýrslu óháðs matsmanns.
Greiðsluskilmálar:
- Greiða þarf
tryggingarfé sem nemur 4 mánaðar leigu eða skila inn bankaábyrgð, sem nemur 5 mánaðar
leigu.
Ganga þarf frá þessu innan sjö daga frá
úthlutun.
- Leiga skal ávallt
greidd fyrsta dag hvers mánaðar og eindagi er sjö dögum
síðar. Momentum sér um að innheimta leigugreiðslur
fyrir Leiguliða.
- í upphafi
er gerður tímabundinn leigusamningur til 12 mánaða.
Samningur er ávallt endurnýjaður óski leigutaki
þess, nema um sé að ræða vanefndir leigjanda
samkvæmt 61.gr. húsaleigulaga. Sé samningur endurnýjaður
er hann minnst til 6 mánaða með 3 mánaðar uppsagnarfresti
beggja aðila ef leigutaki hefur lagt fram tryggingarfé. Endurnýjun á samningi með bankaábyrgð fer eftir lengd ábyrgðar. Tryggingarfé ber vísitölu meðan á leigu stendur.
Uppsögn og úttekt
íbúða:
- Uppsagnarfrestur
beggja aðila að loknum reynslutíma er lögum samkvæmt
sex mánuðir nema um annað sé samið. Að
loknum fimm ára samningi er uppsagnarfrestur leigusala tólf
mánuðir.
- Komi til uppsagnar innan 12 mánarðar er uppsagnarfrestur 6 mánuðir á samingum hjá Leiguliðum. Uppsögn skal vera skrifleg og rökstudd.
- Á uppsagnarfresti
er leigutaka skylt að sýna hið leigða væntanlegum
leigjendum en jafnan skal tilkynna slíka heimsókn með
hæfilegu fyrirvara. Við slíka sýningu húsnæðis
skal leigjandi eða umboðsmaður hans jafnan vera viðstaddur.
Úttektir íbúða:
- Grundvallarreglan
um frágang íbúða er að þær
séu vel hreinar í hólf og gólf, veggir heilir,
(ekki nagla- eða spartlför), málun í góðu
lagi. Gluggar skulu vera hreinir, einnig svalahurða. Gólf
skulu þrifin en ekki bónuð. Þrífa allar
lofttúður, skápa utan sem innan og tæki sem
tilheyra íbúðinni. Perustæði og ljósaperur
eiga að vera í öllum herbergjum. Málningar vinna
á íbúð er gerð í samvinnu við
leigusala en á kostnað leigjenda.Leigjendur fái fagaðila til að meta málningar vinnuna og vinna verkið. M.ö.o.
íbúðin skal tilbúin til innflutnings fyrir
næsta leigutaka.
- Skila þarf frumriti leigusamnings til skrifstofunnar eða úttektarmanns, með setningunni "Samþykkt til aflýsingar" á bakhliðinni" og undirskrift leigjanda. Leiguliðar sjá svo um að láta aflýsa samningnum hjá sýslumanni og skilar svo íbúðinni áfram til nýs íbúa. Ef samningi er ekki skilað þá tefur það fyrir uppgjörinu.
Þegar loka úttekt
hefur farið fram hefur leigutaki ekki kost á því
að gera við eða framkvæma aðrar viðgerðir
á íbúðinni, íbúðin á
að vera tilbúin frá leigutaka þegar loka úttekt
fer fram.
Leiguverð:
Leigusali tekur ákvarðanir um leiguverð. Leiguverð
skal taka mið af raunkostnaði við rekstur. Auk þess
er m.a. reiknað í leiguverð áætlaður viðhaldskostnaður
og þjónustugjald sem ákveðið er af Leiguliða
ehf. Leiguverð byggir m.a á eftirtöldum útgjöldum:
- Afborgun lána
- Fasteignagjöldum
- Viðhalds-
og afskriftarkostnaði
- Húseigenda-
og brunatryggingu
- Hússjóði
- Þjónustugjaldi
Viðhaldsskyldur
leigjanda og Leiguliða ehf. (leigusala)
Leigjanda er skylt að fara vel með hið leigða húsnæði
og í samræmi við umsamin afnot þess. Verði
hið leigða húsnæði eða fylgifé þess
fyrir tjóni af völdum leigjanda, heimilismanna eða annarra
manna sem leigjandi hefur leyft afnot af húsnæðinu eða
umgang um það skal leigjandi gera ráðstafanir til
að bæta úr tjóninu svo fljótt sem verða
má. Ef leigjandi vanrækir þessar skyldur sínar
er leigusala heimilt að láta fara fram viðgerð á
kostnað leigjanda. Áður skal þó leigusali
veita leigjanda frest í einn mánuð til þess að
ljúka viðgerðinni. Leigusali annast viðhald hins leigða,
innan húss sem utan, sbr. þó 3 mgr. Leigusali skal
annast viðgerðir á gluggum, raftækjum, hreinlætistækjum
og öðru því er fylgir húsnæðinu
ef leigjandi sýnir fram á að bilanir verði ekki
raktar til vanrækslu eða yfirsjónar leigjanda eða
fólks á hans vegum. Leigusali skal sinna garðslætti
eftir tilvikum. Leigjanda er skylt að annast á sinn kostnað
viðhald á læsingum, vatnskrönum, raftenglum og öðru
smálegu. Leigjanda ber einnig að halda við málningu
íbúðar. Leigusali skal jafnan halda hinu leigða
húsnæði í leiguhæfu ástandi, m.a.
endurnýja innréttingar, gólfdúka, teppi, og
annað slitlag með hæfilegu millibili, eftir því
sem góðar venjur um viðhald húsnæðis segja
til um. Tjón á hinu leigða, sem er bótaskylt
samkvæmt skilmálum venjulegrar húseigendatryggingar,
skal ætíð bera ef um íbúðarhúsnæði
er að ræða. Leigjandi er skyldugur að vera með innbústryggingu en leigusali er með lögbundnar húseigenda tryggingu. Leigusali sér ekki um að láta tengja síma inn í íbúðinna, það er val leigutaka að vera með tengdan síma og ber leigutaki þar með þann kostnað.
Hússjóður fer í að greiða rekstrarkostnað:
- Að greiða fyrir hita af íbúð leigutaka
- Að greiða fyrir hita og rafmagn af sameign
- Að greiða fyrir sorphirðu/ekki fyrir aukaferðir á Sorpu. (kassar,hjól og húsgögn sem skilin hafa verið eftir í sorp-eða hjólageymslum)
- Að greiða fyrir eftirlit á lyftu/ekki viðgerðir
- Að greiða fyrir símakostnað af lyftu
- Að greiða fyrir snjómokstur
- Að greiða fyrir slátt á grasi
- Að greiða fyrir þrif á hluta af sameign
- Að greiða fyrir leiktæki og endunýjun á þeim
- Að greiða fyrir húsvörslu
- Að greiða fyrir perur í sameign
- "Þetta er sýnishorn á því hvað hússjóður greiðir fyrir"
Umhirða í sameign
Helstu reglur eru:
- Þrif
á sameign skulu framkvæmd samkvæmt húsreglum
hvers húss.
- Meðferð
á þvottavélum og þurrkara sé ætíð
til fyrirmyndar
- Fyllsta
hreinlætis sé gætt í sameign og kringum húsið
- Umhirða um
sorpílát og sameign kringum húsið, þá
viljum við beina því sérstaklega til þeirra
sem reykja að tína upp stubbana eftir sig.
Ef
um er að ræða aðkeypta aðstoð við ofangreindar
skyldur þá bætist sá kostnaður við hússjóðinn.
|